13.08.1913
Neðri deild: 33. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 988 í C-deild Alþingistíðinda. (818)

22. mál, eftirlit með fiskveiðum í landhelgi

Matthías Ólafsson:

Eg hefi ekkert um þetta mál að segja annað en það, sem stendur í nefndarálitinu. Hv. Ed. hefir gert breytingu á því og nefndin, sem fjallað hefir um það hér í deildinni, hefir ekki fundið ástæðu til þess að setja sig upp á móti því, álítur það jafnvel heldur til bóta, og ræður því hv. deild til að samþykkja frumvarpið eins og það er.