10.08.1914
Efri deild: 36. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í B-deild Alþingistíðinda. (1968)

74. mál, land til stækkunar á kirkjugarðinum í Reykjavík

Björn Þorláksson:

Frv. þetta hefir á síðustu stundu borist hingað upp í deildina frá hv. Nd. Ef það yrði samþykt, gæti það kostað landssjóð stórfje, og er því ekki vanþörf á að athuga það sem best. Jeg vil því leggja til, að skipuð verði 3 manna nefnd til þess að athuga það, að þessari umræðu lokinni.