15.07.1914
Neðri deild: 12. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í B-deild Alþingistíðinda. (291)

11. mál, eignarnámsheimild vegna mannvirkja undir hafnarbryggju

Framsögum. (Stefán Stefánsson):

Af því að eg þóttist taka það fram sem máli skiftir, að því er þetta mál snertir, við 1. umr., þá sé eg ekki neina ástæðu til að fara neinum orðum um það nú. Eg vil að eins geta þess, að nefndin leggur til, að frv. varði samþykt óbreytt.