08.08.1914
Neðri deild: 38. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 486 í B-deild Alþingistíðinda. (544)

111. mál, strandferðir

Framsögum. (Sveinn Björnsson) :

Þetta frumvarp stendur í nánu sambandi við þingsál.till., sem er 10. mál á dagskrá í dag, hvernig ræða skuli. Nefndinni virðist eðlilegast, að þessi tvö mál fylgist að, og verði tillagan rædd um leið og frumv. þetta kemur til 2. umr. Vildi eg því mælast til þess, að háttv. deild léti málið ganga fram umræðulaust að þessu sinni, því að hér verður hvort sem er fullnaumur tími í dag.