17.08.1915
Neðri deild: 35. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 897 í B-deild Alþingistíðinda. (1706)

104. mál, útflutningsgjald

Sveinn Björnsson:

Þetta mál var tekið hjer út af dagskrá í gær, til þess að vita, hvort ekki væri hægt að ná samkomulagi milli þeirra, sem ekki vildu ganga að því, eins og það lá fyrir, og nefndarinnar. Nú hefir fjárlaganefnd átt fund með sjer og fengið hv. þm. Ak. (M. K.) til viðtals við sig, og niðurstaðan varð sú, að koma fram með brtt. á þgskj. 374, í þeim tilgangi að ná samkomulagi um frumv. og brtt. jafnframt.

Annað hefi jeg ekki að segja af hendi fjárlagan. að svo stöddu.