19.07.1915
Neðri deild: 10. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1381 í B-deild Alþingistíðinda. (2136)

24. mál, forkaupsréttur landssjóðs á jörðum

Sveinn Björnsson :

Jeg vil taka það fram, að þótt svipuð frumv. hafi áður verið tekin til meðferðar í landbúnaðarnefnd, þá er það engin sönnun fyrir því, að nauðsyn sje að láta þá nefnd fjalla um þetta mál. Jeg held, að best færi á því, að í nefndinni ættu sæti menn, sem jafnframt og sjerstaklega litu á hag landssjóða.