09.08.1915
Neðri deild: 28. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1442 í B-deild Alþingistíðinda. (2219)

54. mál, póstsparisjóðir

Ráðherra:

Jeg hefi leyft mjer að koma fram með eina brtt. á þingskj. 259, um að stytta fyrningarfrestinn úr 50 árum niður í 20 ár. Mjer sýnist það vera heppilegra, að færa þetta í samræmi við 2. gr. laga nr. 14, 20. okt. 1905, um fyrningu skulda. Jeg kynni betur við, ef nefndin hefir ekki neitt á móti því, að sami fyrningarfrestur gildi einnig um þessa kröfutegund.