16.08.1915
Neðri deild: 34. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1564 í B-deild Alþingistíðinda. (2308)

128. mál, rjúpnafriðun

Forseti:

Jeg verð að líta svo á, að aðalatriði þessa frumv., sem sje afnám rjúpnafriðunar sjöunda hvert ár, en lenging friðunartímans árlega yfirleitt, hafi ekki falist í frumv. því, sem felt var í Ed., og að samkvæmt þingsköpunum sje ekkert á móti því, að frv. þetta komi til umr., svo framarlega sem deildin leyfir það. Tel jeg rjett að nafnakall verði við haft um það, hvort háttv. deild leyfir frumv. að koma til meðferðar.