23.08.1915
Neðri deild: 40. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1572 í B-deild Alþingistíðinda. (2319)
128. mál, rjúpnafriðun
Framsögum. meiri hl. (Guðm. Hannesson):
Jeg hefi engu að bæta við það, sem stendur í nefndaráliti meiri hlutans. Þar er skýrt tekið fram, af hverjum ástæðum meiri hluti nefndarinnar ráði til þess, að fella frumvarp þetta.