12.01.1917
Efri deild: 18. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í B-deild Alþingistíðinda. (837)

21. mál, ráðstafanir út af Norðurálfuófriðnum

Forseti:

Jeg verð að vekja athygli hæstv. Ed. á því, að til þess að Alþingi geti lokið störfum sínum í dag, þarf 3 þingfundi, og auk þess einn stuttan aukafund. Vona jeg, að þessi fundur verði eigi lengri en svo, að næsti fundur geti byrjað kl. 6. En skrifstofan segir að fyrr verði naumast tilbúin þau nauðsynleg skjöl, sem koma þurfa á þann fund.