20.07.1917
Efri deild: 12. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1746 í B-deild Alþingistíðinda. (1664)

25. mál, eignarnámsheimild fyrir bæjarstjórn Ísafjarðar

Frsm. (Magnús Torfason):

Jeg þarf ekki að taka annað fram, í viðbót við það, sem áður hefir verið sagt um þetta mál, en að nú er verið að mæla upp og gera áætlanir um hafnarbætur á Pollinum, og er svo til ætlast, að 1. gr. í lögunum frá 1913 nái einnig til þeirra umbóta.

Að svo mæltu leyfi jeg mjer að óska þess, að háttv. deild láti málið ganga til 3. umr.