04.08.1917
Neðri deild: 25. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1750 í B-deild Alþingistíðinda. (1686)

26. mál, stækkun verslunarlóðar Ísafjarðar

Frsm. (Pjetur Ottesen):

Máli þessu var vísað til allsherjarnefndar, og hún leggur til, að það verði samþykt óbreytt, eins og það hefir gengið í gegnum háttv. Ed. Síðan síldarútvegur byrjaði á Ísafirði hefir lóð sú, er hjer um ræðir, verið notuð til atvinnurekstrar. Það er því skiljanlega mikilsvert fyrir þá, sem hlut eiga að máli, að fá hana löggilta sem verslunarlóð.