12.09.1917
Efri deild: 55. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1810 í B-deild Alþingistíðinda. (1758)

39. mál, fasteignamat

Frsm. minni hl. (Guðjón Guðlaugsson):

Frv. þetta kemur ekki í bættum búningi frá háttv. Nd.; hún hefir breytt 1. gr. þess og fært í sama stíl og hún samþykti í vetur. Og þar sem hún hefir hjer að eins endurtekið fyrri samþykt sína, þá býst jeg við, að það gæti orðið frv. að falli, ef þessari grein yrði breytt hjer, og vil því ráða háttv. þm. til að samþykkja frv. óbreytt og fella brtt. á þgskj. 901.