31.07.1917
Efri deild: 18. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1899 í B-deild Alþingistíðinda. (1912)

96. mál, notkun hafna o. fl.

Frsm. (Kristinn Daníelsson):

Jeg býst ekki við, að jeg þurfi að skýra frv. þetta frekar en jeg gerði við 1. umr.

Frv. fjekk þá góðar viðtökur, og hefi jeg ekki heyrt neinar aths. gerðar við það síðan.

Jeg vona því, að það fái að ganga sinn gang og að því verði vísað til 3. umr.