07.08.1917
Neðri deild: 27. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2106 í B-deild Alþingistíðinda. (2160)

137. mál, siglingafáni fyrir Ísland

Forsætisráðherra (J. M.):

Það er öllum vitanlegt, að þetta mál er áhugamál bæði þings og þjóðar, og er óhætt að segja, eins og háttv. frsm. (B. J.), að brennandi áhugi sje með þjóðinni á þessu máli. Ráðuneytið veit vel, hve mikilsvert þetta mál er, og mun því að sjálfsögðu leggja alla sína krafta fram til að framkvæma það, sem farið er fram á með þessari þingsályktun, og það svo fljótt, sem frekast má verða.