15.09.1917
Neðri deild: 61. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1152 í C-deild Alþingistíðinda. (3551)

188. mál, kjötþurkun

Frsm. (Stefán Stefánsson):

Eftir þeim umr., sem fjellu síðast um þetta mál, hefir landbúnaðarnefndin leyft sjer að bera fram brtt. við 2. gr., sem bindur framsal einkaleyfisins við búsetu eða heimilisfestu hjer á landi. Það kom fram við umr. síðast, að þetta væri æskilegt, og sá nefndin ekkert á móti því, og flytur því þessa brtt., en jafnframt tekur hún aftur 2. brtt. á þgskj. 922.

En nú er komin fram brtt. frá háttv. þm. V.-Sk. (G.Sv.) um að fella 2. gr. burt, og mun hann skýra frá rökum til hennar.