03.08.1917
Neðri deild: 24. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1224 í C-deild Alþingistíðinda. (3597)

97. mál, hámarksverð á smjöri

Matthías Ólafssou:

Jeg stend að eins upp til að mæla með brtt. minni á þgskj. 247. Jeg álit þetta mál þannig vaxið, að ekki sje nóg, að Nd. ein skori á stjórnina, heldur þurfi báðar deildir að gera það.

Það mætti æra óstöðugan að karpa við við hv. flm. (S.S.), því að honum er alveg sama, hvað sagt er á móti skoðun hans. Jeg ætla álveg að leiða minn hest frá að reyna til að sannfæra hann.