28.06.1918
Neðri deild: 58. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 793 í C-deild Alþingistíðinda. (2145)

105. mál, bráðabirgðalaunaviðbót til embættismanna o. fl.

Bjarni Jónsson:

Jeg vildi að eins benda á, að auk þeirra starfsmanna, sem gleymst hafa og hv. 2. þm. Árn. (E. A.) nefndi, má minna á dr. Alexander Jóhannesson, kennara í gotnesku og engilsaxnesku. Hann hlýtur að heyra undir sama flokk og aukakennarar. Að vísu er jeg í nefndinni og hefði ekki þurft að nefna þetta hjer, en taldi þó rjett að minna hv. þm. á þennan mann.

Annars mun jeg leiða umr. þessar hjá mjer.