21.06.1918
Efri deild: 48. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í B-deild Alþingistíðinda. (541)

32. mál, fræðsla barna

Frsm. (Kristinn Daníelsson):

Mentamálanefndin hefir leyft sjer að koma fram með brtt. þessa, á þgskj. 378. Allar röksemdir, sem mæla með henni, hefi jeg borið fram áður og sje ekki ástæðu til þess að endurtaka þær.

Nefndin ber brtt. fram vegna þess, að henni er kunnugt um, að ýmsum háttv. þingdm. þykir hún aðgengilegri, en fyrir mitt leyti get jeg sagt, að hún fullnægir ekki skoðun minni, en jeg tel hana þó málamiðlun og vona því, að hún verði samþ.