02.09.1918
Neðri deild: 2. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (14)

1. mál, dansk-íslensk sambandslög

Bjarni Jónsson:

Jeg vil ekki láta það standa, sem háttv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) sagði síðast. Hann hefir eigi ært út úr mjer neitt um kosti eða galla frv. Jeg skyldi gjarnan skrifa um það og senda þingmanninum í prentuðu brjefi, án þess að endurtaka það hjer.