07.09.1918
Efri deild: 3. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í B-deild Alþingistíðinda. (48)

1. mál, dansk-íslensk sambandslög

Forsætisráðherra (J. M):

Að eins örstutt athugasemd. Jeg get ekki skilið það, af hvaða orðum mínum hv. þm. Ísaf (M. T.) hefir dregið þá ályktun, að jeg vildi gera lítið úr ástæðu okkar Íslendinga. Jeg sagði ekkert, er gæti gefið það í skyn.