14.07.1919
Neðri deild: 7. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 584 í B-deild Alþingistíðinda. (225)

17. mál, bráðabirgðainnflutningsgjald af síldartunnum og efni í þær

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg stend að eins upp til þess að þakka háttv. fjárhagsnefnd fyrir það, hversu vel hún hefir tekið í þetta frv. og hversu hún hefir orðið við þeirri ósk minni, að flýta því sem mest. Jeg vona sömuleiðis, að háttv. Alþingi hraði þessu máli.