08.09.1919
Efri deild: 51. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2105 í B-deild Alþingistíðinda. (2298)

135. mál, húsagerð ríkisins

Forsætisráðherra (J. M.):

Þar sem hv. þm. vilja láta frv. ganga umræðulaust til 2. umr., þá býst jeg við, að það mundi fremur spilla fyrir því að ræða það nú, og þar sem brtt. sú, sem komin er fram, liggur ekki fyrir fyr en þá, þá fresta jeg fyrir mitt leyti umræðum þangað til.