31.07.1919
Efri deild: 19. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 298 í C-deild Alþingistíðinda. (3039)

75. mál, bifreiðaskattur

Guðmundur Ólafsson:

Gagnvart ummælum háttv. þm. Ísaf. (M. T.), að meiri hl. fjárhagsnefndar væri frv. mótfallinn, vil jeg geta þess, að mjer er algerlega ókunnugt um þetta, og hefi jeg því sjálfsagt verið settur í minni hl. Jeg kann ekki við, að frv. sje ekki vísað til nefndar, því að fjárhagsnefnd hefir í raun og veru aldrei fjallað um það. Mjer þykir málið ekki svo fráleitt, að ekki sje vert að athuga það í nefnd, þó að skatturinn sje ef til vill fullhár.