24.09.1919
Neðri deild: 72. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 518 í C-deild Alþingistíðinda. (3209)

155. mál, vörutollur

Magnús Guðmundsson:

Jeg hygg, að það geti ekki komið til mála, að frv. verði felt í Ed., því gjaldhækkanirnar voru einmitt teknar úr þessu frv. og settar inn í frv. það, sem nú er í hv. Ed., og tel jeg því alveg hættulaust að fella þetta frv.