30.07.1919
Efri deild: 18. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 630 í B-deild Alþingistíðinda. (322)

33. mál, tollalög

Fjármálaráðherra (S. E.):

Það er að vísu rjett, að nú er ekki mjög áliðið. En það varðar allmiklu að þetta frv. sje afgr. fljótt. Innan skamms er von á skipi með allmiklu af tollvörum, og væri æskilegt, ef þetta frv. væri þá orðið að lögum. Vil jeg því mælast til þess, að málið sje eigi dregið óþarflega á langinn.