15.09.1919
Neðri deild: 64. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1171 í C-deild Alþingistíðinda. (3768)

160. mál, verðtollur á glysvarningi

Flm. (Pjetur Ottesen):

Jeg skal ekki leiða inn umræður að frv. á þessu stigi málsins. Jeg vænti, að hv. deild leyfi málinu að ganga til nefndar, og þá að sjálfsögðu til fjárhagsnefndar. Fjárhagsnefnd hefir, eins og kunnugt er, sýnt dugnað í að greiða fyrir slíkum frv., og vænti jeg, að hún hraði málinu af fremsta megni.