16.08.1919
Efri deild: 32. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 913 í B-deild Alþingistíðinda. (633)

18. mál, fasteignamat

Fjármálaráðherra (S. E.):

Það var tilætlun stjórnarinnar með frv., að breyta mætti matinu, bæði hækka og lækka það í heild sinni og einnig á einstökum jörðum, en ef orðalagið þykir óljóst, er jeg fús til að breyta því, þó mjer sjálfum virðist ekki nauðsyn vera á því.