26.02.1920
Neðri deild: 15. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í C-deild Alþingistíðinda. (956)

53. mál, fótboltaferð um Austfirði

Þorsteinn Jónsson:

Jeg álít, að þýðingarlaust sje að vísa máli þessu aftur til samgöngumálanefndar. Nefndin kom sjer saman um, að hún væri óbundin um atkv. sitt sem slík, og hygg jeg, að ekki hafi komið fram neinar nýjar upplýsingar í málinu, sem gætu hafa breytt skoðun hennar.