26.02.1920
Neðri deild: 15. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í C-deild Alþingistíðinda. (959)

53. mál, fótboltaferð um Austfirði

Björn Hallsson:

Jeg er á sömu skoðun og hv. 1. þm. N.-M. (Þorst. J.) um það, að ekki þýði að vísa málinu til samgöngumálanefndar.

Þessi till. var fyrir nefndinni áður, og var þá samþ. með 7:5 atkv. að taka hana ekki til greina. Jeg veit ekki til, að neinar nýjar upplýsingar hafi komið fram í málinu, er geti hafa breytt skoðun nefndarinnar í þessu efni, og mundi hún því eflaust gefa sama svar sem áður.

Einnig ber þess að gæta, að ekki eru nú eftir nema 1–2 dagar af starfstíma þingsins, og því nokkurn veginn víst, að það er sama sem að drepa málið að fara að vísa því til nefndar hjeðan af.