25.04.1921
Efri deild: 51. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2254 í B-deild Alþingistíðinda. (2439)

117. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka hlutafjárauka o. fl.

Forseti (G. B.):

Þetta frv., sem hjer er um að ræða, er borið fram af 8 þm. þessarar hv. deildar, og áleit jeg mjer skylt að sýna þeim þá virðingu að taka frv. eins fljótt fyrir og unt væri, en þm. eru sjálfráðir, hvort þeir samþykkja að það verði tekið fyrir strax í dag. Mjer er það ekki kappsmál. En hitt er mjer kappsmál, að þingið taki sig saman og framkvæmi eitthvað í máli því, sem frv. þetta fjallar um, nú þegar.