20.05.1921
Neðri deild: 75. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í D-deild Alþingistíðinda. (3689)

139. mál, vaxtakjör landbúnaðarlána

Flm. (Eiríkur Einarsson):

Það var ætlun mín að láta nokkur orð fylgja þessari till. og gera grein fyrir henni, en af því að jeg veit, að það er ósk allra þm„ að umræður sjeu nú sem stystar, þá er jeg að hugsa um að láta mjer nægja að vísa til þeirrar stuttu greinargerðar, er till. fylgir, nema þau mótmæli komi fram frá hv. þm., er gefa mjer tilefni til að taka til máls aftur. Jeg býst við, að þeir, sem eru landbúnaðarvinir meira en í orði, sjái, hversu þýðingarmikil þessi till. er, og ljái henni fylgi sitt.