20.05.1921
Neðri deild: 75. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í D-deild Alþingistíðinda. (3694)

139. mál, vaxtakjör landbúnaðarlána

Jón Auðunn Jónsson:

Hin langa ræða hv. 1. þm. Árn. (E. E.) hefir víst sannfært flesta deildarmenn um það, að þessi till. hans getur engu þokað um vaxtakjör bankanna. Hv. þm. (E. E.) benti ekki á neina leið fyrir stjórnina til að framkvæma það, sem hann ætlast til, enda mun hún vandfundin. Sje jeg annars ekki ástæðu til að fjölyrða um þennan barnaskap.