17.03.1921
Neðri deild: 25. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 575 í D-deild Alþingistíðinda. (3790)

87. mál, vantraust á núverandi stjórn

Flm. (Bjarni Jónsson):

Þetta er hættuleg braut, sem hjer er gengið inn á. Ef einhver segir, að þetta eða hitt sje óþinglegt, þá er gefið fordæmi með þessu, og enn fremur fyrir því, að þingmenn hjálpi hver öðrum til þess að halda dagkaupi sínu, þótt þeir neiti að greiða atkv.