25.04.1922
Neðri deild: 55. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 945 í B-deild Alþingistíðinda. (2102)

Starfslok deilda

forseti (B. Sv.):

Þetta mun vera síðastur fundur þessarar háttv. þingdeildar. Býst jeg við, að hæstv. forseti sameinaðs þings muni gefa skýrslu um störf Alþingis áður því lýkur, og þykir því eigi þurfa að greina frá störfum deildarinnar.

Vil jeg árna öllum þeim háttv. þm., sem heima eiga utan Reykjavíkur, fararheilla, og segi svo fundi slitið.