09.03.1922
Sameinað þing: 5. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í B-deild Alþingistíðinda. (62)
Trúlofun krónprinsins
Forseti (Sv. Ó.):
Í framhaldi af skýrslu hæstv. forsætisráðherra vil jeg leyfa mjer að geta þess, að forsetar Alþingis komu sjer saman um að senda hans hátign konunginum heillaóskaskeyti í tilefni af trúlofun ríkiserfingjans og Olgu prinsessu af Grikklandi, og hefir forsetum borist aftur svo hljóðandi þakkarskeyti:
„Vjer þökkum hjartanlega fyrir hluttekningu Alþingis í gleði vorri.
Christian, Alexandrine.“