05.05.1923
Efri deild: 56. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1597 í B-deild Alþingistíðinda. (1347)

110. mál, jarðræktarlög

Frsm. (Sigurður Jónsson):

Jeg vænti þess, að háttv. deild greiði svo fyrir þessu máli, að það komist fram.

Jeg geri ráð fyrir því, að allir háttv. þdm. hafi svo kynt sjer þetta mál, að óþarft sje að fara um það mörgum orðum. Frv. var útbýtt fyrir alllöngum tíma, og hefir það litlum breytingum tekið síðan. Nefndin leggur til, að það gangi fram óbreytt, og leggur það fyrir háttv. deild með von um það, að þessi bálkur verði einna helst talinn þingi þessu til gildis, ef að lögum verður.