05.04.1923
Efri deild: 32. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1898 í B-deild Alþingistíðinda. (1780)

9. mál, vatnalög

Sigurður Jónsson:

Tilefni til þess, að jeg stend upp, er það, að hæstv. atvrh. (KIJ ) og háttv. 4. landsk. þm. (JM) hafa látið í ljós þá hugsun, að ekki hafi verið tekið tillit til fossanna við fasteignamatið síðasta. Jeg vil votta það, að það var ekki gert nema á einum stað, en þar hafði foss verið leigður til langs tíma.