16.04.1923
Efri deild: 41. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í C-deild Alþingistíðinda. (2014)

19. mál, vitabyggingar

Frsm. (Jón Magnússon):

Jeg ætla mjer eigi að lengja umr., en nefndin hefir haft mál þetta til athugunar úr hv. Nd., og þar sem yfirlýsing hæstv. atvrh. (KIJ) er til um það, að eigi liggi á þessu máli nú sem stendur, þá leggur nefndin til, að frv. verði felt. Má altaf taka málið upp aftur, þegar nauðsyn er fyrir hendi.