07.05.1923
Neðri deild: 59. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 292 í C-deild Alþingistíðinda. (2145)

58. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. meiri hl. (Magnús Guðmundsson):

Það er rjett athugað af hv. 4. þm. Reykv. (MJ), að sú leið er ekki fær, sem jeg talaði um áðan. Jeg athugaði ekki, að þetta er 3. umr. málsins, og er slík meðferð, sem jeg stakk upp á, því óleyfileg. Þykir mjer leiðinlegt, að þetta skyldi ekki vera athugað í tíma við 2. umr., því að nú er það of seint.