05.04.1923
Neðri deild: 34. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í B-deild Alþingistíðinda. (222)

2. mál, sýsluvegasjóðir

Frsm. (Pjetur Þórðarson):

Að gefnu tilefni vil jeg taka það skýrt fram um upphæðir þær, sem í fjárlögum standa til akfærra nýrra sýsluvega, að það er tilætlun vegamálastjóra, að þær standi framvegis til boða hvar sem er, þótt frv. þetta verði að lögum og komi til framkvæmda, sem jeg vona, að verði nú þegar.