24.02.1923
Neðri deild: 5. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í B-deild Alþingistíðinda. (225)

12. mál, aðflutningsbann á áfengi

Forsætisráðherra (SE):

Þetta frv. er nákvæmlega samhljóða tilskipuninni um undanþágu frá bannlögunum frá í fyrra, að öðru leyti en því, að orðin „til ársloka 1923“ eru feld niður, og því, að bætt er við sektarákvæðum. Að öðru leyti er málið svo alkunnugt og skýrt, að óþarfi er að fjölyrða meira um það. Skal jeg svo að lokum aðeins leyfa mjer að stinga upp á því, að málinu verði vísað til háttv. allsherjarnefndar.