13.03.1923
Neðri deild: 19. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í B-deild Alþingistíðinda. (237)

12. mál, aðflutningsbann á áfengi

Frsm. (Magnús Jónsson):

Jeg býst við, að háttv. samþm. minn. 2. þm. Reykv. (JB). muni ef til vill taka aftur til máls, og langar mig til að gera stutta athugasemd áður en hann talar sig dauðan.

Jeg vildi mega spyrja háttv. þm., hvort útdráttur minn úr skýrslu herra Pjeturs Ólafssonar hafi verið litaður. Jeg tók það skilmerkilega fram, að Pjetur Ólafsson teldi markaðshorfur, nú betri heldur en áður en hann fór að heiman, og las upp ummæli hans um það. Jeg veit ekki til, að annar útdráttur úr skýrslu hans hafi komið fram opinberlega, og langar því til að spyrja hv. þm., hvort hann telji þennan útdrátt minn litaðan.