13.03.1923
Neðri deild: 19. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í B-deild Alþingistíðinda. (243)

12. mál, aðflutningsbann á áfengi

Forsætisráðherra (SE):

Mjer þykja þau ummæli háttv. 1. þm. Reykv. (JakM) ærið einkennileg, að þetta hafi ekkert verið athugað.

Sannleikurinn er sá, að þetta var athugað mjög ítarlega.

En hitt datt mjer aldrei í hug, og jeg álít, að þingið hefði getað áfelt stjórnina fyrir það, ef hún hefði farið að spyrja Spánverja að því, hvernig haga ætti vínsölunni innanlands.

Það hefði vel getað orðið til þess, að orðið hefði að byrja á nýjum samningum, og það tel jeg ekki heppilegt.