24.02.1923
Neðri deild: 5. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 717 í C-deild Alþingistíðinda. (2487)
4. mál, embættaskipun
Forsætisráðherra (SE):
Jeg held, að það sje engin minkun að því, þótt reynt sje að koma embættisskipun þjóðfjelagsins í sæmilegt horf í framtíðinni. Ætti enginn þm. að óttast, að það yrði honum að aldurtila í kjördæmi hans.