10.03.1923
Efri deild: 14. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1108 í C-deild Alþingistíðinda. (2936)

51. mál, meðferð á því fé sem landssjóði áskotnaðist fyrir áfengi

Forsætisráðherra (SE):

Jeg vil aðeins gefa þær upplýsingar, að ágóðinn af vínsölunni, síðan hún byrjaði, er nú þegar orðinn um 270 þús. kr.

Annars ætla jeg ekki að fara að ræða þetta mál, að svo stöddu, en vil aðeins geta þess, að ef sjerstakar ráðstafanir ætti að gera um þetta fje, en á því munu nú varla ráð, þá teldi jeg því best varið til þess að koma upp landsspítalanum.