20.04.1923
Efri deild: 44. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í D-deild Alþingistíðinda. (3046)

144. mál, póstflutningur í Skaftafellssýslum

Björn Kristjánsson:

Af því að þetta mál skiftir póststjórnina miklu, þá vil jeg leggja til, að því sje vísað til nefndar til athugunar, því að sjálfsagt virðist að bera undir póststjórnina, hvort hún vilji senda póst á þennan hátt.

Annars legg jeg til, að máli þessu verði vísað til allsherjanefndar.