08.03.1923
Neðri deild: 15. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (53)

35. mál, dómþinghár

Frsm. (Gunnar Sigurðsson):

Eins og nál. ber með sjer, þá hefir allshn. fallist á frv. á þskj. 35 ásamt brtt. á þskj. 43. Nefndin biður það lagað í meðförum, að í brtt. eru hrepparnir hafðir í eintölu, sem á að vera fleirtala. Þetta hefir slæðst inn af vangá, annaðhvort í handriti eða hjá prenturunum.