13.03.1923
Efri deild: 16. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í B-deild Alþingistíðinda. (58)
35. mál, dómþinghár
Sigurður Jónsson:
Jeg man ekki, hvort þetta frv. var sett í nefnd í hv. Nd. eða ekki, en samskonar mál var hjer á ferðinni í fyrra og fjekk þá góðan byr, og því vil jeg leggja til, að frv. verði látið ganga nefndarlaust gegnum þessa háttv. deild.