18.04.1923
Neðri deild: 45. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1001 í B-deild Alþingistíðinda. (785)

1. mál, fjárlög 1924

Frsm. samgmn. (Þorsteinn Jónsson):

Út af því, sem hv. þm. Barð. (HK) sagði um það, að hann hefði ekki verið sammála okkur samnefndarmönnum sínum um áætlun Esju, verð jeg að lýsa því yfir, að þetta er ósatt, og er öllum, sem óska þess, heimilt að sjá fundargerð nefndarinnar frá 20. mars. Sjest þar, að enginn nefndarmaður hefir gert neinn ágreining um áætlunina.